
Velkomin
Það að nema staðar andartak stöku sinnum er oft eina leiðin til þess að vera fær um að halda áfram.
Ýmis atvik og aðstæður geta komið upp í einkalífi okkar og starfi sem gott er að geta talað um við óháðan aðila, án fyrirframmótaðra skoðana. Í samtalinu uppgötvum við ótal nýja fleti á málum okkar, fáum nýjar hugmyndir og sjáum nýjar leiðir. Við komumst að því hvað við raunverulega viljum – sem auðveldar okkur að taka næsta skref.
Coach er samtalsaðili bundinn þagnarskyldu. Hann hjálpar þér að finna þá leið sem þú telur besta. Flest coach-samtöl fara fram í gegnum síma eða tölvu. Með nútímatækni er bæði auðvelt og ódýrt að leita ráðgjafar í öðrum löndum – sem er kostur í fámennu landi. Aðrir kostir eru:
- Samtalið fer fram í þínu eigin umhverfi
- Þú þarft ekki að ferðast milli staða
- Þú getur framkvæmt hugmyndir þínar strax að loknu samtali
TerapiCentret styður Better Globe